
En það kom að því.
Við fórum í sumarbústað upp í Borgarfjörð ásamt mömmu og pabba og vorum búin að vera þar í klukkustund þegar síminn hrindi, systir hans pabba hafði orðið bráðkvödd aðeins sextug að aldri. Nú er ég kannski ekki að segja alveg satt þegar ég segi lífið hafa verið okkur áfallalaust. Af 10 systkinum pabba eru nú 4 farin, hin 3 létust í frumbernsku. Ég veit að hann pabbi minn hugsar oft til þeirra og annarra sem hafa verið honum samferða á lífsleiðinni en eru ekki lengur meðal okkar. Það var þungur hugurinn fyrstu dagana í Borgarfirðinum. Og því kem ég að því sem ég lagði upp með í byrjun þessarrar færslu, það sótti að mér kvíði yfir því að þurfa kannski einhvern tímann að kveðja fólk sem hefur verið mér ómissandi frá upphafi, fólk sem litar tilveru mína svo skemmtilega, fólk sem ég hef alltaf tekið sem sjálfsögðum hlut.
Það rigndi án afláts og veðrið spilaði undir þessar hugsanir sem leituðu á mig. Að lokum stytti upp, sólin kemur jú alltaf að lokum og einhvern veginn er auðveldara að hugsa jákvætt í sólskininu.
Auðbjörg var fimmtán árum yngri en hann pabbi. Hún kom oft til okkar í Vatnsholt og einu sinni man ég eftir að hafa verið hjá henni í pössun í einhverja daga í góðu yfirlæti. Auðbjörg var eftirtektarverð, hún var glæsileg og falleg kona, alltaf vel tilhöfð og í flottum fötum. Ég hef ekki hitt hana oft núna í seinni tíð sem minnir mig á það að það á að rækta það fólk sem í kringum mann er, áður en það er of seint.
Útför Auðbjargar var gerð frá gömlu kirkjunni minni í Villingaholti í gær, útförin fór fram í kyrrþey og var einstaklega falleg athöfn, ræðan hjá prestinum falleg og umgjörðin, kirkjan, garðurinn og uppstyttan í veðrinu, allt spilaði þetta saman og gerði að einni fallegri mynd.

Það er erfitt að ímynda sér systrahópinn hans pabba án Auðbjargar en kannski er engin ástæða til þess.
2 Comments:
Innilegar samúðarkveðjur frá okkur fyrir vestan. Tóta.
Þið fáið öll mínar innilegar samúðarkveðjur.
Kv., Helena.
Skrifa ummæli
<< Home