sunnudagur, desember 03, 2006

it beginning to look a lot like christmas....

Jæja, þá er nú búið að troða sig út í Skíðaskálanum, mikill matur og enn meiri matur og verð ég að segja að þetta var flottasta jólahlaðborð sem ég hef farið á og hef ég farið á þau mörg! Mér tókst reyndar að móðga yfirþjóninn en vonandi verður hann búinn að fyrirgefa mér að ári. Við tengdamóðir mín ákváðum það nefnilega að fyrsta helgin í desember verður hér eftir jólahlaðborðshelgi familiunar! Jahá. En húsbandið stóð sig líka vel og við Bjössi minn náðum að sýna nokkra takta á dansgólfinu. Jóhanna komst á séns, ég segi nú ekki meira um það, hún verður að svara fyrir sig sjálf. En athygli vakti að henni ástkæru tengdamóður minni tókst að borða syni sína undir borðið og verður það nú að teljast afrek hreinlega, hún var enn að borða þegar hlaðborðið var tekið niður og naut sín afar vel. Ég var nú svo ljónheppin að hitta gamlan séns en varð hins vegar afskaplega undrandi að sjá þennan mann verða sér til skammar á öllum sviðum og skil ekkert í sjálfri mér að hafa einhvern tímann litið þennan mann hýru auga.(eg var nú reyndar enn í gaggó þá þannig að þroskinn hefur kannski ekki verið mikill). En svona var jólahlaðborðið 2006, þið ættuð endilega að spyrja Björninn útí manninn sem söng við pianóið. Uppfrá honum spunnust umræður um Bjössa þegar hann drakk og mig minnti endilega að hann Haraldur Ísafjarðardreki hafi einhvern tímann sagt að hann Björn hafi nú ekki verið ýkja skemmtilegur undir áhrifum en það vildi Bjössi ekki samþykkja. Hann Halli myndi aldrei segja að hann hafi verið leiðinlegur undir áhrifum. Halli minn, þú kannski leysir úr þessu ágreiningsefni okkar hjóna.

Nóg í bili ef mér tekst að birta þetta

Ljón í danstjúttfíling.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að allir skemmtu sér vel og voru saddir og sælir. Það er rétt hjá Njössa að Halla dettur ekki í hug að orða það að hann hafi verið leiðinlegur undir áhrifum (enda voru þeir oftast að bralla eitthvað þegar ég var ekki heima;-)...sæluhelgi vara það kallað). En ég tek þetta alfarið á mig enda hef ég látið þetta útúr mér einhverntíman, við getum sagt að hann var misskemmtilegur, fór eftir aðstæðum , held bara að mér hafi fundist það fara honum eitthvað illa að vera undir áhrifum, þurfti ekkert á því að halda blessaður. Knús Tóta.

2:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahahaha þetta átti nú að vera Bjössa :-)

2:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja góða svona ertu. Ertu til í pasa doble

11:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er ekki rétt Tóta Bjössa fannst hann alltaf þrælskemmtilegur!!!

9:11 f.h.  
Blogger Heiðagella said...

heyrru skutla, ég hef hreinlega ekki haft neinn tíma í að kíkja í búðir eftir gogga Jensen dóti, alt brjál. að gera í þessum skóla... vona að mér verði fyrirgefið....
kys Heiða

1:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Heiða, ekki brjálast í skólanum

10:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home