þriðjudagur, mars 27, 2007

vituð ér enn - eða hvað?

jamm, svo segir í völuspánni en ég hreinlega veit ekki neitt.
málið er með hana önnu bellu, ég má ekkert borða,
þá kemur á hana svipur sem er ekki sjón að sjá.
Eða allar þessar lyftur, lóðin þyngd og ekkert elsku amma
hlýt að verða orðin flott fyrir sumarið hreinlega
vinsti grænir, málfræðilegur bastarður, þetta nafn.
VINSTRI HREYFINGIN - GRÆNT FRAMBOÐ
ég man að það var rifist um þetta nafn á sínum tíma og elsku kellingin hún guðrún helgadóttir var æst á móti þessu, þetta er í sitt hvoru kyni og þar með ógjörningur að fallbeygja þetta rétt.
ég er nú samt að spá í að senda þeim atkvæðið mitt, svona uppá gamlan vinskap.
en úps, bloggtíminn búinn

þangað til næst

ljón í sumaryl og með brjálaða bellu á bakinu

föstudagur, mars 02, 2007

sommerholiday

ég er að spá í að fara í sumarbústað, ein, yfir helgi. þeir sem vilja, eru velkomnir með svo fremi að þeir séu eldri en 16 ára. mikið verður hún helga mín ánægð að heyra það eða hitt þó heldur.

ég hef soldið verið að stúdera blöðin og þau eru búin að vera svo neikvæð eitthvað undanfarið. voða mikið pælt í þessu baugsmáli sem enginn skilur nema skúli, en hann er nú líka súper gáfaður enda af hinni miklu ætt súper-manna! börnin eru endalaust rökkuð niður, sökuð um að vera frek og agalaus en hitt fylgir ekki sögu hverjir það séu sem geri þau frek o.s.frv.

annars er hann almar minn að fara að fermast, 15. apríl fyrir þá sem búa langt í burtu og vilja koma í fermingu. svona er þetta fljótt að líða, hann var nú ekki nema sjö ára kríli þegar ég hitti hann fyrst og gat ekki ákveðið hvort hann vildi verða frægur vísindamaður eða forseti! Nú er hann orðinn stærri en ég og hættur að ganga í stígvélum. en hann almar minn er hvorki frekur né agalaus heldur bara sætur og ljúfur eins og stjúpmóðir hans enda hefur hann þetta frá mér blessaður drengurinn. það er ekki leiðum að líkjast segi ég nú bara.

ég hef ekki meira að bulla kæru vinir og vandamenn. spennandi fréttirnar bíða þar til næst, það er ekki á ykkur leggjandi að demba því á ykkur núna en eflaust eiga einhverjir eftir að stynja og dæsa yfir vitleysunni í okkur og aðrir eftir að reka upp stór augu, svona eins og amman í rauðhettu sem var svo bara úlfurinn.....................................

ljón en ekki úlfur............og þó.